Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Miðvikudagur, 24. október 2007
Hææj
Jæja...ég er komin til Húsavíkur aftur og þá er bara skólinn sem tekur við þar....ég er ánægð að geta skroppið svona einstöku sinnum í frí.En það er ekki allttaf sældin...því ég er alltaf að læra og svo er verið að vinna heima mar kemst ekki mikiið á netið svo það getur tekið á að mæta svo fólki og það hálfgert skammar mann fyrir að blogga ekki á netinu
En ég tek bara til minnar ráða og blogga bara alltaf á morgnanna þegar ég er í skólanum...rita svo niður á blað yfir daginn og blogga annað hvort daginn eftir eða kemst í tölvu og blogga þar fréttir sem koma seinna
En það verða ekki fleiri í bili því mín þarf að mæta í tíma og vil síst af öllu verða sein
Sjáumst seinna á blogginu;) og það myndi ekki skemma þótt þið mynduð setja ykkar skoðanir í Comment eða skrifuðuð í gestabókina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. október 2007
Heimsókn;*
Ég sit hérna við fartölvuna mína og drekk Smirnoff Ice sem er bæði orðinn léttur og volgur en ég læt mig hafa það. Mamma og Herdís frænka eru úti á rúntinum og krakkarnir eru heima hjá Margréti svo ég er bara ein heima Herdís kom nefnilega í heimsókn og ætlar að vera hérna með stelpurnar til morguns Ég ætla að reyna að komast út í kvöld....hef ekkert komist út vegna skólans og annarra ÞáttaEn allavega er rautt þema í kvöld svo maður verður að hendast í fataskápinn hennar múttu og finna eitthvað rautt Ég er að vonast til að finna eitthvað....!!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. október 2007
Ok..dagurinn;*
Hmmm.....dagurinn er varla byrjaður og ég þurfti að fara upp í hesthús áðan vegna þess að 'Aðall' slapp út en það er folaldið hennar múttu;D
Hérna er mynd af honum
Hann ætlaði ekki að hlýða en gerði það samt að lokum;D Ég fór svo heim og skipti um sokka því hinir voru orðnir rennandi blautir Ég dreif sig síðan út í sjoppu og keypti mér kók og skrapp í búðina og verslaði mér alveg ekta salat og Epla svala Er síðan að fara inn í sveit á eftir að hjálpa til með að búa til Slátur....það er alveg ótrúlega gaman ef ég á segja satt hérna.
En ég þarf örugglega að fara upp í hesthús á eftir til að tékka á karlinum, hvort hann sé búinn að sleppa út aftur. Sem ég vona ekki en mar reynir þá bara að koma honum inn aftur en ég ætla þá að vera í stígvélum því ég er ekki með fleiri aukasokka því miður.
En hey.....wft...ég ætla að fara og gefa hrossunum brauð og klappa þeim eitthvað....heyri í ykkur seinna og muna gestabókina og endilega KOMMENTA takk fyrir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. október 2007
Helgin framundan og Haustfrí;*
Já....ég heima hjá múttu yfir helgina og ætla sko að hafa það næs því ég nenni hreinlega ekki neinu standi....ég mun samt hjálpa til með heimilisverkin og elda ef ég þarf þess Það er sko nóg búið að vera að gera hjá mér þessa dagana;D ég er náttúrulega alltaf í skóalnum og svo er 'Haustfríið' í næstu viku.... Ætli ég verði ekki bara heima hjá múttu á meðan ég klára þetta fjandans frí og stekk svo beint í skólann á miðvikudeginum???
Æi...veit það hreinlega ekki... Ég ætla allavega að fara inn í sveit og heimsækja liðið þar og kannski kíki ég á dýrin í leiðinni Mútta gamla er að vinna á daginn frá kl 14 - 18:30 og strákarnir í skólanum og ef ekki eru þeir út um allt....annað hvort á einhverju skólamóti eða heima hjá vinum sínum;D
Ég er samt bara heima hjá mér og heng í tölvunni og blogga um mitt leiðindarlíf...nei segi svona en hvað með það, ég horfði á Borgarstjórakosningarnar um daginn og mér finnst þetta algjörlega út í hött....ég held sko með Framsókn og VG svo mér finnst að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki átt að rakka aumingja Björn Inga í BEINNI ÚTSENDINGU um daginn
Mín skoðun er sú að Sjálfstæðisflokkurinn hafi bara verið að redda sér út úr þessari flækju en samt geta þeir það ekki....Björn Ingi var sagður hafa slitið sambandi sínu við þá og ég vona að það hafi verið satt því ekki myndi ég vilja vera í samfloti við fólk sem er nýbúið að vera að rífa manninn í sig í sjónvarpinu fyrir framan alþjóðina....ó nei takk fyrir
En ég þarf að fara að elda svo við sjáumst og ég safna í nýtt og spennandi blogg á meðan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar